New Paragraph

Um Aðventusvellið

Aðventusvellið er glæný og spennandi viðbót við Aðventugarðinn í Reykjanesbæ en það er staðsett í skrúðgarðinum í Keflavík. Þar gefst fjölskyldum einstakt tækifæri til að upplifa saman gleðilegar stundir með hressandi útivist og hreyfingu. Það er Gautaborg ehf. sem hefur tekið að sér reksturinn á svellinu í samstarfi við Reykjanesbæ. Aðventusvellið er 200 fermetrar að stærð og er umhverfisvænt þar sem það þarfnast hvorki raforku né vatns en svellið samanstendur af sérhönnuðum plötum sem hafa sömu eiginleika og venjulegur ís. Þá er einnig minni slysahætta á þessu svelli þar sem það gefur aðeins eftir ólíkt hefðbundnum ís. Hægt er að nota alla skauta nema listdansskauta sem eru með tennur að framan.

Aðventusvellið er frábær afþreying, upplifun og hreyfing fyrir íbúa Reykjanesbæjar og gesti Aðventugarðsins.


Áskrift

Við mælum með því að vera í áskrift af svellinu ef þú og/eða fjölskyldan þín ætlið að vera dugleg að skauta í vetur.


Áskrift fyrir einn aðila kostar  5.000 kr. fyrir tímabilið*

Áskrift fyrir fjölskylduna kostar 10.000 kr. fyrir tímabilið*.

Innifalið í því eru tveir fullorðnir og börn undir 16 ára. 

- Hægt er að kaupa áskrift á staðnum-

Stök skautaferð kostar 1.200 kr.

Skautar eru innifaldir í öllum verðum.

🎅Hægt er að kaupa gjafabréf hjá okkur á opnunartíma🎅

Þeir sem eru í áskrift hafa ótakmarkaðan aðgang að svellinu á meðan á opnunartíma stendur.


Hver skautaferð er 40 mín og hefst á heila tímanum.

Mikilvægt er að mæta tímanlega til að forðast raðir.

* Tímabilið 2023-2024


Hægt er að kaupa áskrift á staðnum og á Sportabler. Íbúar Reykjanesbæjar geta nýtt frístundastyrkinn sinn.

https://www.sportabler.com/shop/reykjanesbaer/gautaborg


Opnunartímar





Aðventusvellið opnar aftur nóvember 2024







Hópabókanir

Afmæli

Afmælispakki okkar miðar við 2 tíma á svellinu þar sem afmælishópurinn hefur það útaf fyrir sig. Innifalið er pizza og gos auk afmæisglaðnings frá okkur.


Verð 2490 kr. á mann

*lágmark 30.000 kr.


Ef þú villt bóka afmæli hjá okkur má hafa samband fyrir neðan eða hringja í s. 8353533





Hópefli og viðburðir

Hópa pakki 1 

aðgangur að svellinu í 3 tíma 

40 geta verið inná í einu 

verð á mann 1.200kr*

*Lágmark 40.000 kr.


Hópa pakki 2 

aðgangur að svellinu í 3 tíma 

pizzur fyrir starfsfólk miðum við 3-4 sneiðar á mann og gos 

verð 2590kr á mann* 

*lágmark 50.000kr


Við erum með pakka sem geta hentað öllum tegundum viðburða og hópeflis vinnustaða. Hægt er að senda okkur póst á gautaborgehf@gmail.com og við sérsmíðum pakka að þínum þörfum.


Hafðu samband við okkur

Contact Us

Share by: